Hyundai bifreiðar er smíðaðar eftir ströngustu gæðastöðlum. Það gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum Hyundai upp á eina fullkomnustu ábyrgðarvernd sem völ er á.
Hyundai býður viðskiptavinum(1) sínum 7 ára ábyrgð, á öllum nýjum bifreiðum seldum af BL ehf. á Íslandi.
Til að viðhalda ábyrgðinni þarf að koma með bifreiðina í árlegar reglubundnar þjónustuskoðanir samkvæmt nánari skilgreiningum sem finna má í ábyrgðar- og þjónustubók bifreiðarinnar.
Nánari upplýsingar um kostnað við árlegar þjónustuskoðanir er hægt að nálgast hjá viðurkenndum þjónustuaðilum Hyundai.
Ábyrgðin er frá stuðara til stuðara, þar með talið drifrás og 12 ára ábyrgð gegn tæringu.
7 ÁRA VEGAAÐSTOÐ
Vegaaðstoð fylgir 7 ára ábyrgð, ef upp kemur galli í bifreiðinni hefur viðskiptavinur samband við þjónustunúmer Hyundai í síma 822-8010 og verður úrlausn fundin í samráði við viðskiptavininn.
SKILNINGUR OG SAMSKIPTI
Þetta ábyrgðarloforð er staðfesting þess að starfsfólk Hyundai mun leggja sig allt fram við að hlusta á þarfir viðskiptavina sinna sem og gera upplifun þeirra sem eignast Hyundai sem ánægjulegasta.
ENGAR ÁHYGGJUR
Loforð um 24 tíma neyðarþjónustu er ætlað til þess að auka gæði þjónustu og hámarka ánægju þess að eiga Hyundai.
ÁREIÐANLEIKI
Þjónusta sem þessi aðstoðar viðskiptavini að viðhalda gæðum bílsins og auðveldar aðgengi að tæknimönnum Hyundai þegar um er að ræða spurningar sem snerta viðhald og rekstur bifreiðarinnar
Hyundai er umhugað um að meta stöðugt síbreytilegar þarfir viðskiptavina sinna. Þess vegna munu starfsmenn Hyundai hlusta af kostgæfni á hvað viðskiptavinirnir hafa fram að færa og þannig stuðla að ánægju þeirra. Með því að bæta við 5 ára ábyrgðarskilmála Hyundai, Gæðaskoðun og Vegaaðstoð er viðskiptavinum Hyundai gefin kostur á að njóta þess að tilheyra hópi Hyundai eigenda sem fær fyrsta flokks þjónustu við allar aðstæður yfir allan ábyrgðatíma bílsins og þannig á upplifunin að koma þægilega á óvart í hvert skipti sem viðskiptavinur kemur með bílinn til eftirlits.
Hyundai bifreiðar er smíðaðar eftir ströngustu gæða stöðlum. Það gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum Hyundai upp á eina fullkomnustu ábyrgðarvernd sem völ er á.
5 ÁRA VERKSMIÐJUÁBYRGÐ
Hyundai býður viðskiptavinum(1) sínum 5 ára ábyrgð, án nokkurra akstursviðmiðana(2), á öllum nýjum bifreiðum seldum af viðurkenndum Hyundai söluaðila í Evrópu(3):
Til að viðhalda ábyrgðinni þarf að koma með bifreiðina í þjónustuskoðanir samkvæmt nánari skilgreiningum sem finna má í ábyrgðar- og þjónustubók bílsins.
Nánari upplýsingar um kostnað við árlegar þjónusutskoðanari er hægt að nálgast hjá viðurkenndum þjónustuaðilum Hyundai
Ábyrgðin er frá stuðara til stuðara, þar meðtalið drifrás og 12 ára ábyrgð gegn tæringu.
5 ÁRA VEGAAÐSTOÐ
Vegaaðstoð fylgir 5 ára ábyrgð, ef upp kemur galli í bifreiðinni hefur viðskiptavinur samband við þjónustunúmer Hyundai í síma 822-8010 og verður úrlausn fundin í samráði við hann.
ENGAR ÁHYGGJUR
Þessuloforði um 24 tíma neyðarþjónustu er ætlað að auka á gæði og ánægjuupplifunarinnar að eiga og umgangast Hyundai.
ÁREIÐANLEIKI
Mikilvægt er að sinna þjónustuskoðunum samkvæmt fyrirmælum í ábyrgðar- og þjónustubók . Með því eru auknar líkur á að öryggisþættir bílsins virki rétt og akstur verði til ánægju.
Við hlökkum til að heyra frá þér.